Fótbolti

Umdeild vítaspyrna réði úrslitum á Vicenté Calderón | Sjáðu markið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Mark Antoines Griezmann úr vítaspyrnu réði úrslitum í fyrri leik Atlético Madrid og Leicester City í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Á 28. mínútu braut Marc Albrighton á Griezmann utan vítateigs. Jonas Eriksson dæmdi samt vítaspyrnu sem Griezmann skoraði af öryggi úr.

Atlético Madrid var mun sterkari aðilinn í leiknum og miklu meira með boltann en skapaði sér ekki mörg opin færi. Að sama skapi átti Leicester ekki skot á markið í leiknum.

Fleiri urðu mörkin ekki og 1-0 sigur Atlético Madrid staðreynd. Lærisveinar Diegos Simeone hafa nú haldið hreinu í 16 af síðustu 18 heimaleikjum sínum í Meistaradeildinni.

Seinni leikur liðanna fer fram á King Power vellinum í Leicester á þriðjudaginn í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×