Bíó og sjónvarp

Jude Law leikur ungan Dumbledore

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Jude Law verður yngri útgáfa Dumbledore.
Jude Law verður yngri útgáfa Dumbledore. Vísir/Getty/Warner Bros
Breski leikarinn Jude Law mun taka að sér hlutverk ungs Albus Dumbledore í næstu Fantastic Beasts mynd. AP greinir frá.

Warner Bros tilkynnti um þetta í gær en Dumbledore, skólameistari Hogwarts-skóla í Harry Potter heiminum, var leikinn af Richard Harris og Michael Gambon í kvikmyndinum um Harry Potter.

Law mun taka að sér að leika ungan Dumbledore en alls er ráðgert að gera fimm Fantastic Beasts myndir sem eru einskonar forsaga Harry Potter-bókanna.

Fyrsta myndin kom út á síðasta ári en Eddie Redmayne leikur aðalhlutverkið. Búist er við að tökur á mynd númer tvö hefjst síðar á árinu.


Tengdar fréttir

Dumbledore snýr aftur

J.K. Rowling segir að ungur Dumbledore muni birtast í framhaldsmyndum Fantastic Beasts and Where to Find Them.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×