Handbolti

Kristianstad byrjar úrslitakeppnina af krafti

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gunnar Steinn skoraði tvö mörk og gaf fjórar stoðsendingar.
Gunnar Steinn skoraði tvö mörk og gaf fjórar stoðsendingar. vísir/getty
Kristianstad átti ekki í neinum vandræðum með að leggja Eskilstuna Guif að velli, 30-19, í fyrsta leik liðanna í 8-liða úrslitum um sænska meistaratitilinn í handbolta.

Íslendingarnir í liði Kristianstad skoruðu samtals fimm mörk í leiknum.

Gunnar Steinn Jónsson skoraði tvö mörk og gaf fjórar stoðsendingar, Arnar Freyr Arnarsson skoraði sömuleiðis tvö mörk og Ólafur Guðmundsson gerði eitt mark.

Næsti leikur liðanna fer fram á heimavelli Eskilstuna Guif á sunnudaginn. Vinna þarf þrjá leiki til að komast í undanúrslit.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×