Handbolti

Með 22 mörk í síðustu þremur leikjum Aue

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sigtryggur hefur verið öflugur í síðustu leikjum Aue.
Sigtryggur hefur verið öflugur í síðustu leikjum Aue. vísir
Sigtryggur Rúnarsson kom með beinum hætti að 13 mörkum þegar Aue beið lægri hlut fyrir Bad Schwartau, 29-25, í þýsku B-deildinni í handbolta í kvöld.

Sigtryggur skoraði níu mörk og gaf fjórar stoðsendingar í leiknum í kvöld.

Sigtryggur hefur verið sérlega öflugur upp á síðkastið en hann hefur skorað samtals 22 mörk í síðustu þremur leikjum Aue.

Föðurbróðir Sigtryggs, Árni Þór Sigtryggsson, skoraði þrjú mörk fyrir Aue en Bjarki Már Gunnarsson komst ekki á blað.

Aron Rafn Eðvarðsson varði níu skot (42,9%) í marki Bietigheim sem vann þriggja marka sigur, 28-25, á Hamm-Westfalen í sömu deild.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×