Fótbolti

Roy Carroll er ekkert hættur í boltanum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Roy Carroll.
Roy Carroll. Vísir/Getty
Roy Carroll, fyrrum markvörður Manchester United og West Ham, er ennþá á fullu í fótboltanum og er nýbúinn að skrifa undir nýjan samning.

Carroll gerði nýjan eins árs samning við írska félagið Linfield en hann er að klára sitt fyrsta tímabil með Linfield-liðinu.

Roy Carroll er fæddur árið 1977 og verður því fertugur í haust. Hann hefur átt mjög gott tímabil og liðið á enn möguleik á að vinna tvöfalt á hans fyrsta tímabili. Liðið er aðeins einu stigi frá toppnum og komið í undanúrslit írska bikarsins.

„Roy er áhrifamikill leiðtogi sem gefur gott fordæmi fyrir alla í kringum sig,“ sagði David Healy, knattspyrnustjóri Linfield við BBC. David Healy spilaði einmitt með Roy Carroll hjá landsliði Norður-Írlands.

„Hann hefur staðið sig frábærlega í markinu hjá okkur og aldrei betur en þegar frábærar markvörslur á lokamínútunum tryggðu okkur sigur á móti bæði Dungannon Swifts og Crusaders,“ sagði Healy.

Roy Carroll spilaði með Manchester United frá 2001 til 2005 og varð enskur meistari 2003 og enskur bikarmeistari 2004. Hann varð einnig þrisvar sinnum grískur meistari og tvisvar sinnum grískur bikarmeistari með Olympiacos.

Hann hefur einnig spilað með Hull City, Wigan Athletic, West Ham, Derby County, Odense í Danmörk og OFI Crete á löngum ferli sem hófst hjá Hull City árið 1995 rétt fyrir átján ára afmælið hans.

Roy Carroll hefur spilað 44 landsleiki fyrir Norður-Írland og hann mætti einu sinni Íslandi á Laugardalsvellinum. Það var 11. Október 2000 og Carroll hélt hreinu fram á 88. Mínútu þegar Þórður Guðjónsson skoraði eina mark leiksins og tryggði Íslandi þrjú stig í undankeppni HM 2002. Carroll var þá leikmaður Wigan.

Roy Carroll hefur spilað 44 landsleiki þar af einn þeirra á móti Íslandi.Vísir/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×