Fótbolti

Didier Drogba verður fyrsti spilandi eigandinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Didier Drogba
Didier Drogba Vísir/AFP
Didier Drogba er orðinn eigandi fótboltaliðs í Bandaríkjunum og hann ætlar einnig að spila með liðinu. Drogba er tekinn við hjá Phoenix Rising sem er nýtt lið í MLS-deildinni í Bandaríkjunum.

Drogba leitaði meðal annars ráða hjá Roman Abramovich, eiganda Chelsea, áður en hann ákvað að stökkva á þetta tækifæri að byggja upp nýtt fótboltalið. Drogba er einn af tíu fjárfestum sem hafa veðjað á Phoenix Rising verkefnið.

Drogba fékk tilboð frá liðum í ensku úrvalsdeildinni og hann einnig fengið starf í þjálfarateymi Antonio Conte hjá Chelsea. Drogba er nýbúinn að halda upp á 39 ára afmælið en hann hefur spilað vel í MLS-deildinni síðustu ár.

Drogba hefur ekki áhyggjur af því að hann sem bæði eigandi og leikmaður liðsins skapi með því vandræði fyrir þjálfarann Frank Yallop. Hann er samt sá fyrsti sem reynir þessa blöndu hjá stóru félagi.

„Hvað varðar þjálfun liðsins þá er ég bara þarna sem leikmaður. Það er enginn möguleiki á því að ég geti skipað þjálfaranum að spila mér. Ég mun ekki reyna að hafa áhrif á hans ákvarðanir,“ sagði Didier Drogba en hvort að hann geti staðið við það er önnur saga.

„Sem einn af eigendunum þá mun ég taka þátt í að ákveða hvaða leikmenn verða fengnir til liðsins og koma með tillögur um hvað sé best fyrir félagið. Ég ætla að halda áfram að spila en aðalmarkmið mitt er að byggja upp Phoenix-liðið og koma því í hópi stóru liðanna í MLS-deildinni,“ sagði Drogba.

Didier Drogba átti frábær átta ár með Chelsea frá 2004 til 2012 og skoraði meðal annars 157 mörk í 341 leik í öllum keppnum með Lundúnafélagið. Hann kom síðan aftur til Chelsea tímabilið 2014-15 og bætti þá við sjö mörkum og tveimur titlum (meistari og deildabikarmeistari).

Hann varð fjórum sinnum meistari með Chelsea, fjórum sinnum bikarmeistari og vann einnig Meistaradeildina 2012 þar sem hann skoraði sigurmarkið í vítakeppninni.

Droba hefur frá 2015 spilað með Montreal Impact í MLS-deildinni og var með 21 mark í 33 deildarleikjum með liðinu.


Tengdar fréttir

Drogba plataði en svindlaði ekki

Rannsókn á góðgerðarsjóði Didier Drogba hefur leitt í ljós að ekkert svindl var í gangi né var varið að misnota fé úr sjóðnum. Drogba sagði þó ekki alveg satt og rétt frá um hvað væri verið að gera við féð.

Chelsea-tríó með doktorsgráðu í markafræði

Chelsea vann tólfta leikinn í röð í ensku úrvalsdeildinni sem er met. Allt hefur breyst síðan Antonio Conte skipti um leikkerfi. Chelsea er meira að segja komið með sitt eigið ofurtríó sem er á pari við þau á Spáni.

Drogba fagnar rannsókn

Didier Drogba, fyrrum leikmaður Chelsea, óttast það ekki að ensk yfirvöld ætli að skoða málefni góðgerðarsamtaka sem hann stofnaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×