Golf

Valdís Þóra komst í gegnum niðurskurðinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Valdís Þóra lék á einu höggi undir pari í dag.
Valdís Þóra lék á einu höggi undir pari í dag. Mynd/LET/Tristan Jones
Valdís Þóra Jónsdóttir komst í gegnum niðurskurðinn á Lalla Meryem mótinu í golfi sem fer fram í Marokkó. Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni í golfi.

Valdís Þóra lék fyrsta hringinn í gær á fjórum höggum yfir pari. Skagakonan náði sér mun betur á strik í dag og lék hringinn á einu höggi undir pari.

Valdís Þóra er því samtals á þremur höggum yfir pari en niðurskurðurinn miðast við fimm yfir pari.

Valdís Þóra fékk fjóra fugla á hringnum í dag, þrjá skolla og 11 pör.

Valdís Þóra er núna í 35.-42. sæti en örfáir kylfingar eiga eftir að klára hringinn.


Tengdar fréttir

Valdís Þóra á fjórum yfir pari

Valdís Þóra Jónsdóttir hefur lokið keppni á fyrsta degi Lalla Meryem mótsins í golfi sem fer fram í Marokkó.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×