Handbolti

Aron og félagar komnir í bikarúrslit

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aron skoraði fimm mörk í dag.
Aron skoraði fimm mörk í dag. vísir/epa
Aron Pálmarsson og félagar í Veszprém eru komnir í úrslit ungversku bikarkeppninnar eftir stórsigur á Csurgói, 33-23, í dag.

Veszprém mætir Pick Szeged í úrslitaleiknum klukkan 12:15 á morgun.

Aron skoraði fimm mörk í leiknum í dag og var næstmarkahæstur í liði Veszprém. Slóvenski línumaðurinn Blaz Blagotinsek var markahæstur með átta mörk.

Veszprém hefur orðið bikarmeistari í Ungverjalandi undanfarin níu ár. Síðustu fimm ár hefur liðið unnið Pick Szeged í bikarúrslitaleiknum.

Í fyrra vann Veszprém Pick Szeged eftir vítakastkeppni. Aron skoraði sex mörk í úrslitaleiknum og var valinn besti leikmaður úrslitahelgarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×