Handbolti

Arna Sif skoraði fimm af síðustu sex mörkum Nice

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Arna Sif var öflug á lokakaflanum.
Arna Sif var öflug á lokakaflanum. vísir/ernir
Arna Sif Pálsdóttir skoraði sex mörk og var markahæst í liði Nice OGC sem gerði jafntefli, 24-24, við Chambray í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Arna Sif var sérstaklega öflug undir lokin en hún skoraði fimm af síðustu sex mörkum Nice í leiknum.

Karen Knútsdóttir lék ekki með Nice í kvöld. 

Nice er í níunda og þriðja neðsta sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×