Körfubolti

Haukur Helgi stiga- og stoðsendingahæstur í sigri

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Haukur Helgi skilaði sínu í kvöld.
Haukur Helgi skilaði sínu í kvöld. vísir/valli
Haukur Helgi Pálsson átti frábæran leik þegar Rouen bar sigurorð af Saint-Chamond, 85-77, í frönsku B-deildinni í körfubolta í kvöld.

Haukur Helgi skoraði 18 stig og var stigahæstur í liði Rouen. Hann var einnig stoðsendingahæstur hjá Rouen með fjórar stoðsendingar.

Haukur Helgi setti niður átta af 14 skotum sínum í leiknum, þar af eitt fyrir utan þriggja stiga línuna.

Þetta var þriðji sigur Rouen í síðustu fjórum leikjum. Liðið er í 11. sæti deildarinnar og á enn möguleika á að komast í umspil liðanna í sætum 2-9.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×