Enski boltinn

Wood jafnaði á elleftu stundu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Wood skorar jöfnunarmark Leeds.
Wood skorar jöfnunarmark Leeds. vísir/getty
Chris Wood tryggði Leeds United stig gegn Newcastle United þegar hann jafnaði metin í 1-1 þegar fjórar mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Wood er markahæsti leikmaður ensku B-deildarinnar í vetur.

Fyrri hálfleikurinn var nokkuð fjörugur þótt engin mörk hafi litið dagsins ljós. Bæði lið áttu t.a.m. skot í stöng.

Á 67. mínútu kom Jamall Lascelles Newcastle yfir og það leit allt út fyrir að það yrði sigurmark leiksins. En Wood var á öðru máli og jafnaði metin á 94. mínútu eins og áður sagði. Lokatölur 1-1.

Newcastle er í 2. sæti deildarinnar með 85 stig, fjórum stigum á eftir toppliði Brighton þegar fjórar umferðir eru eftir.

Leeds er hins vegar í 4. sætinu með 73 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×