Handbolti

Aron tryggði Veszprém bikarmeistaratitilinn | Sjáðu sigurmarkið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aron skoraði fimm mörk í dag.
Aron skoraði fimm mörk í dag. vísir/epa
Aron Pálmarsson og félagar í Veszprém urðu í dag ungverskir bikarmeistarar níunda árið í röð eftir nauman sigur á Pick Szeged, 23-22, í úrslitaleik. Veszprém var fjórum mörkum yfir í hálfleik, 13-9.

Aron skoraði sigurmarkið úr vítakasti þegar leiktíminn var runninn út. Íslenski landsliðsmaðurinn skoraði alls fimm mörk fyrir Veszprém og var næstmarkahæsti leikmaður liðsins í leiknum. Slóvenski hornamaðurinn Gasper Marguc skoraði sjö mörk.

Marguc var valinn besti leikmaður úrslitahelgarinnar en þau verðlaun féllu Aroni í skaut í fyrra.

Aron skoraði einnig fimm mörk þegar Veszprém vann Csurgói, 33-23, í undanúrslitunum í gær.

Þetta er fjórði stóri titilinn sem Aron vinnur með Veszprém síðan hann gekk í raðir liðsins sumarið 2015.


Tengdar fréttir

Aron og félagar komnir í bikarúrslit

Aron Pálmarsson og félagar í Veszprém eru komnir í úrslit ungversku bikarkeppninnar eftir stórsigur á Csurgói, 33-23, í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×