Enski boltinn

Swansea í erfiðum málum eftir enn eitt tapið | Öll úrslit dagsins

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gylfi vonsvikinn á svip.
Gylfi vonsvikinn á svip. vísir/getty
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Swansea City töpuðu 1-0 fyrir Watford í ensku úrvalsdeildinni í dag. Gylfi var fyrirliði Swansea og spilaði allan leikinn.

Étienne Capoue skoraði eina mark leiksins á 42. mínútu eftir skelfileg mistök Alfies Mawson í vörn Swansea.

Gylfi og félagar náðu sér engan veginn á strik í dag og staða þeirra er ekki góð. Swansea er enn í fallsæti en liðið hefur ekki unnið síðan 4. mars.

Swansea gat þó huggað sig við að á sama tíma tapaði Hull 3-1 fyrir Stoke City. Þetta var fyrsti sigur Stoke í fimm leikjum.

Marco Arnautovic, Peter Crouch og Xherdan Shaqiri skoruðu mörk Stoke en Harry Maguire gerði mark Hull.

Everton lyfti sér upp í 5. sætið með 3-1 sigri á Burnley á Goodison Park. Þetta var áttundi heimasigur Everton í röð.

Phil Jagielka kom Everton yfir á 49. mínútu með sínu þriðja marki í jafn mörgum leikjum. Forystan entist þó aðeins í þrjár mínútur því Sam Vokes jafnaði metin úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur.

Everton tryggði sér svo sigurinn með sjálfsmarki og marki frá Romelu Lukaku. Þetta var 24. mark Belgans í ensku úrvalsdeildinni í vetur.

Leicester City glutraði niður tveggja marka forystu gegn Crystal Palace á Selhurst Park. Lokatölur 2-2.

Leicester komst í 0-2 með mörkum frá Robert Huth og Jamie Vardy en Yohan Cabaye og Christian Benteke sáu til þess að Palace fékk stig. Strákarnir hans Stóra Sams hafa aðeins tapað einum af síðustu átta leikjum sínum.

Fabio Borini tryggði Sunderland stig gegn West Ham United þegar hann jafnaði metin á lokamínútunni. Lokatölur 2-2.

West Ham komst tvisvar yfir í leiknum en tókst samt ekki að vinna botnliðið.

Í fyrsta leik dagsins vann Tottenham 4-0 sigur á Bournemouth.

Úrslitin í dag:

Tottenham 4-0 Bournemouth

Watford 1-0 Swansea

Everton 3-1 Burnley

Stoke 3-1 Hull

Sunderland 2-2 West Ham

Crystal Palace 2-2 Leicester


Tengdar fréttir

Sjöundi sigur Spurs í röð

Tottenham minnkaði forskot Chelsea á toppi ensku úrvalsdeildarinnar niður í fjögur stig með öruggum 4-0 sigri á Bournemouth í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×