Enski boltinn

Liverpool aftur upp í 3. sætið | Sjáðu markið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Liverpool endurheimti 3. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með sterkum útisigri, 0-1, á West Brom í dag.

Roberto Firmino skoraði eina mark leiksins í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Hann skallaði þá boltann í netið af stuttu færi eftir aukaspyrnu James Milners og skalla Lucas.

Liverpool þurfti að hafa mikið sigrinum sem var þó sanngjarn. Matt Philipps fékk dauðafæri til að jafna metin fyrir West Brom tíu mínútum fyrir leikslok en Simon Mignolet, sem átti mjög góðan leik, varði vel.

West Brom hefur nú mistekist að skora í fjórum leikjum í röð. Liðið er áfram í 8. sæti deildarinnar.

Liverpool er nú komið með 66 stig í deildinni, sex stigum meira en liðið fékk allt tímabilið í fyrra.

Hér fyrir neðan má lesa beina lýsingu frá gangi mála í leiknum.

Leik lokið: Moss flautar af! Mikilvægur sigur Liverpool staðreynd.

90+3. mín: Foster fer inn í teig í hornspyrnu, Liverpool nær boltanum, varamaðurinn Alberto Moreno ber boltann upp völlinn og reynir svo skot en hittir ekki tómt markið!

80. mín: DAUÐAFÆRI! Matt Philipps kemst einn gegn Mignolet sem ver virkilega vel.

76. mín: Coutinho með aukaspyrnu sem Craig Dawson skallar aftur fyrir.

61. mín: Origi skallar boltanum í netið en markið er dæmt af vegna rangstöðu. Réttur dómur.

57. mín: Firmino lyftir boltanum á fjær á Milner sem skýtur yfir úr dauðafæri! Þarna sleppa heimamenn vel.

Seinni hálfleikur hafinn: Moss flautar seinni hálfleikinn á!

Fyrri hálfleik lokið: Liverpool fer með forystu til búningsherbergja eftir þetta mark Firminos.

45+1. mín: MARK!!! Firmino skorar með skalla af stuttu færi! James Milner tekur aukaspyrnu á hægri kantinum og sendir boltann inn á teiginn, Lucas framlengir boltann á landa sinn sem skallar framhjá Ben Foster.

35. mín: Jake Livermore með fína sendingu inn fyrir vörn Liverpool á Robson-Kanu sem á slakt skot beint á Simon Mignolet. Illa farið með gott færi hjá velska landsliðsframherjanum.

34. mín: Firmino vinnur boltann af Darren Fletcher og kemur honum á Coutinho sem á skot yfir. Annað skiptið í leiknum sem West Brom tapar boltanum á hættulegum stað.

23. mín: Nacer Chadli hittir ekki boltann í álitlegri stöðu á fjærstönginni.

15. mín: Yacob tapar boltanum klaufalega á miðjunni, Liverpool-menn bruna fram og Firmino skýtur framhjá úr góðu færi! Boltinn sleikir stöngina.

14. mín: Heimamenn eru örlítið frískari hér í byrjun leiks. Engin færi þó litið dagsins ljós.

Leikur hafinn: Jonathan Moss flautar til leiks!

Fyrir leik:

Tony Pulis, stjóri West Brom, gerir sömuleiðis þrjár breytingar frá síðasta leik. Hal Robson-Kanu, Claudio Yacob og Chris Brunt koma inn í staðinn fyrir Allan Nyom, James Morrison og Salomon Rondón.

Fyrir leik:

Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, gerir þrjár breytingar á byrjunarliði frá 1-2 sigrinum á Stoke um síðustu helgi. Brasilíumennirnir Philippe Coutinho, Roberto Firmino og Lucas koma allir inn. Út fara Trent-Alexander Arnold, Ben Woodburn og Ragnar Klavan.

Fyrir leik:

Góðan daginn og velkomin í beina lýsingu frá leik West Brom og Liverpool í ensku úrvalsdeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×