Handbolti

Bjarki Már og félagar með sterkan sigur

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Bjarki Már komst ekki á blað í dag.
Bjarki Már komst ekki á blað í dag. vísir/getty
Füchse Berlin gerði Rhein-Neckar Löwen og Kiel stóran greiða í baráttunni um þýska meistaratitilinn í handbolta með sigri á Flensburg, 34-32, í dag.

Bjarki Már Elísson var ekki á meðal markaskorara hjá Berlínarrefunum sem hafa unnið fjóra leiki í röð og eru í 4. sæti deildarinnar.

Flensburg er í 2. sætinu með 44 stig, einu stigi á eftir toppliði Löwen og tveimur stigum á undan Kiel sem er í 3. sæti.

Rúnar Kárason skoraði eitt mark fyrir Hannover-Burgdorf sem laut í lægra haldi fyrir Magdeburg, 23-28, á heimavelli.

Hannover er á hraðferð niður töfluna en liðið hefur tapað átta leikjum í röð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×