Íslenski boltinn

Margrét Lára tryggði Val sigur í Lengjubikarnum

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Margrét Lára Viðarsdóttir fagnar marki.
Margrét Lára Viðarsdóttir fagnar marki. vísir/anton brink
Valur varð í kvöld Lengjubikarmeistari kvenna í fótbolta í þriðja sinn þegar liðið lagði Breiðablik, 2-1, í Egilshöllinni.

Þetta er þriðja árið í röð sem Breiðablik tapar úrslitaleik Lengjubikarsins en undanfarin tvö ár þurfti það að horfa á eftir titlinum til FH og ÍBV. Síðast vann Breiðablik þennan bikar fyrir fjórum árum þegar það mætti einmitt Val í úrslitaleiknum.

Stefanía Ragnarsdóttir kom Blikum yfir á tólftu mínútu leiksins en Fanndís Friðriksdóttir jafnaði metin fyrir Breiðablik á 44. mínútu og staðan 1-1 í hálfleik.

Eftir spennandi seinni hálfleik var það Valur sem stóð uppi sem sigurvegari en sigurmarkið skoraði landsliðsfyrirliðinn Margrét Lára Viðarsdóttir á 79. mínútu.

Breiðablik hefur tvisvar sinnum unnið deildabikarinn en þetta er í sjöunda sinn sem liðið tapar í úrslitaleiknum. Valur er með þrjá sigra í átta úrslitaleiknum en FH hefur oftast allra unnið deildabikarinn eða sex sinnum.

Pepsi-deild kvenna hefst fimmtudaginn 27. apríl en þá verður leikur Hauka og meistara Stjörnunnar í beinni útsendingu. Breiðablik mætir FH í fyrstu umferð en Valur heimsækir Þór/KA fyrir norðan.

Úrslit og markaskorarar fengnir frá fótbolti.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×