Lífið

Tæplega fimmtíu fermetra kjallaraíbúð á Bergstaðastrætinu til sölu á 32 milljónir

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hér má sjá mynd af húsinu.
Hér má sjá mynd af húsinu.
Fasteignasalan Landmark er með tveggja herbergja kjallaraíbúð við Bergstaðastræti á söluskrá en kaupverðið er tæplega 32 milljónir.

Íbúðin er 46,7 fermetrar að stærð og er kjallarinn steyptur en húsið timburbygging að ofan.

Íbúð hefur sérinngangur, anddyri, samliggjandi stofu og eldhús, eitt svefnherbergi, baðherbergi og sérgeymslu.

Aðeins ein mynd fylgir fasteignaumfjölluninni á fasteignavef Vísis en fyrir liggur að endurnýja bárujárnsklæðningu á húseign og kemur þar fram að seljandinn muni sjá um þann kostnað.

Fasteignamat eignarinnar er rúmlega 20 milljónir en húsið var byggt árið 1903.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×