Sport

Langt í land hjá Conor og Mayweather

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Conor ætlar ekki að gefa UFC meirihlutann af því sem hann myndi fá fyrir að berjast við Floyd Mayweather.
Conor ætlar ekki að gefa UFC meirihlutann af því sem hann myndi fá fyrir að berjast við Floyd Mayweather. vísir/getty
Þrátt fyrir miklar þreifingar síðustu mánuði og sögusagnir um að allt sé nánast klappað og klárt er langt í að bardagi Conor McGregor og Floyd Mayweather verði að veruleika.

Slagurinn stendur auðvitað fyrst og síðast um peninga. Það sem talinn er vera erfiðasti hjallinn er hversu mikið UFC á að fá í sinn hlut.

Conor og Mayweather skipta því fé sem kemur inn á milli sín og svo þarf UFC að fá sinn skerf af hluta Conors þar sem hann er á samningi hjá þeim. Þar eru menn ekki sammála um hversu mikið UFC ætti að fá.

Frændi Floyd Mayweather segist hafa heimildir fyrir því að UFC vilji fá 80 prósent af helmingi Írans. Það sættir Conor sig ekki við.

„Málið mjakast áfram en það er ekki nálægt því að klárast. Ég myndi segja ykkur ef við værum nálægt því að skrifa undir samninga en það er enn langt í land,“ sagði Dana White, forseti UFC.

MMA

Tengdar fréttir

Floyd myndi drepa Conor

Léttþungavigtarmeistarinn hjá UFC, Daniel Cormier, hefur ekki mikla trú á félaga sínum hjá UFC, Conor McGregor, í boxbardaga gegn Floyd Mayweather.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×