Bílar

Benz trukkasýning á laugardag

Finnur Thorlacius skrifar
Einn veglegur frá Mercedes Benz.
Einn veglegur frá Mercedes Benz.
Sýning á Mercedes-Benz trukkum verður haldin í höfuðstöðvum Mercedes-Benz atvinnubíla að Fosshálsi 1 laugardaginn 22. apríl kl. 12 til 16. ,,Við verðum með margar gerðir öflugra Mercedes-Benz vörubíla til sýnis og má þar nefna fjögurra öxla Arocs vörubíla, Actros flutninga- og dráttarbíla, Antos og Arocs krókheysisbíla og Atego sendibíla.

Nýr Meiller malarvagn verður á staðnum og auk þess verðum við með nýjan fjögurra öxla vörubíl með Meiller palli og munum bjóða upp á reynsluakstur á honum," segir Eiríkur Þór Eiríksson hjá Mercedes-Benz atvinnubílum. Stjarna sýningarinnar er þó öflugur Mercedes-Benz Arocs SLT (Schwer Last Transport) sem er öflugasti dráttarbíll sem framleiddur er af Mercedes-Benz.

Bíllinn er framleiddur fyrir þungaflutninga og sá sem verður á sýningunni er öflugasta útgáfan sem er með uppgefna 250 tonna dráttargetu. Hann er sértaklega fluttur inn fyrir sýninguna en enginn slíkur er skráður hér á landi. Mercedes-Benz er stærsti framleiðandi atvinnubíla í heiminum og njóta þeir vinsælda hér eins og víða um heim. ,,Mercedes-Benz atvinnubílarnir eru fjölbreyttir og uppfylla ólíkustu þarfir við ýmsar aðstæður, allt frá minnstu sendibílum  upp í stærstu vöru- og hópferðabíla,” segir Eiríkur ennfremur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×