Glamour

Serena Williams á von á sínu fyrsta barni

Ritstjórn skrifar
Serena Williams er sigursælasta tenniskona heims.
Serena Williams er sigursælasta tenniskona heims. Vísir/Getty
Tennisstjarnan Serena Williams tilkynnti á Snapchat aðgangi sínum fyrr í dag að hún væri ólétt og gengin 20 vikur á leið. Serena, sem er sigursælasta tenniskona heims, er trúlofuð Alexis Ohanian, einum af stofnanda Reddit. 

Serena birti myndina í dag en eyddi henni þó stuttu eftir. Netverjar voru þó fljótir að birta myndina á internetinu strax í kjölfarið. 

Íþróttastjarnan hætti við að taka þátt í tennismóti í Kaliforníu í mars. Hún sagði það vera vegna hnémeiðsla. Ekkert hefur þó sést til hennar síðan þá og er óléttan talin vera ástæðan fyrir því. 






×