Innlent

Ráðuneytið vinnur að gerð reglugerðar um fylgdarlaus börn á flótta

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Í dómsmálaráðuneytinu fer nú fram vinna við gerð reglugerðar um fylgdarlaus börn á flótta sem koma hingað til lands. Dómsmálaráðherra segir reglurnar snúa að verklagi og málsmeðferð þessara mála.

Í síðustu viku var greint frá því að tveir hælisleitendur á barnsaldri sem komu fylgdarlausir hingað til lands með Norrænu í september dvelji einir á gistiheimili í miðbæ Reykjavík.

Lögmaður þeirra segir þá búa við óviðunandi aðstæður og gagnrýnir stjórnvöld fyrir að hafa lítil afskipti af þeim. Þá sagði talskona Barnaheilla – Save the Children á Íslandi að brotið væri á réttindum barnanna þar sem úrræði vanti fyrir þau. Hún segir vanta samstarf milli Barnaverndarnefndar og Útlendingastofnunar um úrræði fyrir börnin.

Sigríður Andersen dómsmálaráðherra segir að verið sé að bregðast við. „Það þarf klárlega að setja upp verklag sem rennur nokkuð áreynslulaust hérna og við erum nú að setja reglur með stoð í útlendingalögum. Auðvitað hefur verið unnið eftir ákveðnu verklagi hér en það þarf auðvitað að formgera það.“

Hún segir að um ræði málsmeðferðar- og verklagsreglur. „Hverjum ber hvað í þessu, það Útlendingastofnun, Barnaverndarstofu og barnaverndarnefndar í hverju sveitarfélagi. Þessir aðilar hafa allir hlutverki að gegna þegar kemur að fylgdarlausum börnum. Aðalmarkmið íslenskra yfirvalda þegar kemur að fylgdarlausum börnum er að leita og finna uppruna þeirra, finna fjölskyldur þeirra. Markmiðið er auðvitað sameina þessa einstaklinga fjölskyldum sínum.“

Sigríður segist vera vel meðvituð um stöðu fylgdarlausra á landinu. „Þau eru auðvitað vistuð í móttökustöðvum Útlendingastofnunar, á sérstökum fjölskyldugöngum. Í einhverjum tilvikum hefur það verið mat Útlendingastofnunar að það fari betur að þau séu vistuð annars staðar,“ segir Sigríður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×