Glamour

Klassíski rykfrakkinn skýtur upp kollinum á ný

Ritstjórn skrifar
Glamour/getty
Margir eru farnir að klæðast léttari yfirhöfn, þó enn geti komið páskahret, þá eru bjartari tímar framundan. Hinn klassíski rykfrakki á sér langa sögu og skýtur yfirleitt upp kollinum í fjölbreyttum myndum á þessum tíma árs.

Enginn undantekning er á því í ár en núna skal hann vera í síður, í víðari kantinum og mögulega með skemmtilegum smáatriðum á ermum og tölum.

Saga rykfrakkans, eða á ensku trenchcoat, nær alla leið aftur til 1850 þegar Thomas Burberry hannaði flíkin fyrir herinn og átti hann að reynast hermönnum vel þegar þeir lágu í skurðum.

Flestar verslanir og fatamerki eru með sína eigin útgáfu af rykfrakkanum góða sem vert er að gefa gaum, eða leynist kannski einn gamall og góður í fataskápnum?

 

Fyrir bæði kynin - hér árið 1974.
Vítt snið fyrir herrana á sýningu Burberry fyrir næsta vetur.
Á tískupallinum hjá Balenciaga.





×