Innlent

Gestir héldu eldinum í skefjum þegar kviknaði í Kaffi Krús

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Kaffi Krús á Selfossi.
Kaffi Krús á Selfossi. Vísir/GVA
Mildi var að ekki fór verr þegar eldur kom upp á veitingastaðnum Kaffi Krús á Selfossi í gær. Margt fólk var á staðnum og náðu veitingagestir að halda eldinum í skefjum þar til slökkvilið kom á vettvang.

Húsið sem veitingastaðurinn kaffi Krúsi er í var byggt árið 1931 en veitingastarfsemi hefur verið á staðnum í 25 ár.

Eldurinn kom upp á tíunda tímanum í gærkvöldi, í reykháfi sem er áfastur veitingastaðnum. Um leið og hann uppgötvaðist var staðurinn rýmdur og kallað eftir aðstoð Brunavarna Árnessýslu.

„Þetta var mikið sjokk,“ segir Tómas Þórodsson, eigandi Kaffi Krúsar en hann segir að veitingasalurinn hafi verið fullur af gestum þegar eldurinn uppgötvaðist.

„Starfsfólkið brást hárrétt við, hringdi strax á slökkviliðið og lét rýma svæðið. Það voru nokkrir Selfyssingar uppi á efri hæðinni að borða. Þeir stukku niður í eldhús, náðu í slökkviliðstæki og náðu að kæfa eldinn,“ segir Tómas.

Hann hrósar slökkviliðinu á Selfossi mikið fyrir viðbragstíma slökkviliðsmanna.

„Slökkviliðið var mætt eftir eina og hálfa mínútu sem er ótrúlegt, þvílíkir fagmenn. Þeir rifu klæðninguna og náðu að slökka eldinn,“ segir Tómas.

Eldurinn logaði upp undir þakskeggi og ljóst að illa hefði farið ef eldurinn hefði náð að læsa sig í þakið en húsið er gamalt timburhús. Tómas segir að brunan í gær koma til með að hafa einhver áhrif á reksturinn næstu daga.

„Efri hæðin er lokuð núna en við ætlum að reyna að halda úti lágmarksþjónustu,“ segir Tómas sem telur það vera heppni að ekki hafi farið verr.

„Þett er eitt af kennileitum Selfoss, þetta var bara þvílík lukka.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×