Sport

Undradrengurinn er heillaður af Gunnari Nelson en vill ekki berjast við hann næst

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gunnar Nelson vill fá bardaga á móti Undradrengnum.
Gunnar Nelson vill fá bardaga á móti Undradrengnum. vísir/getty
Stephen „Wonderboy“ Thompson, efsti maður styrkleikalistans í veltivigt UFC-bardagasambandsins, hefur ekki áhuga á bardaga á móti Gunnari Nelson næst þegar hann stígur inn í búrið en John Kavanagh, þjálfari Gunnars, kallaði eftir bardaga á móti Undradrengnum þegar íslenski bardagakappinn var búinn að ganga frá Alan Jouban í London í síðasta mánuði.

Thompson er búinn að tapa tvisvar sinnum fyrir Tyrone Woodley í titilbardaga og veit sjálfur að hann þarf að berjast tvisvar sinnum áður en hann fær annað tækifæri til að hirða beltið af Woodley.

Undradrengurinn var í viðtali í þættinum The MMA Hour í gær sem Ariel Helwani, virtasti og vinsælasti MMA-blaðamaður heims, stýrir. Þar sagði Thompson að hann væri með nafn sem hann vill berjast við næst.

„Það er rétt hjá þér. Bardagi á milli mín og Robbie Lawler væri frábær,“ sagði Thompson en Lawler er fyrrverandi veltivigtarmeistari sem er í öðru sæti styrkleikalistans núna, sæti á eftir Thompson.

„Hann vill berjast standandi sem ég elska. Svo eru líka strákar þarna eins og Carlos Condit og Nate Diaz sem vilja líka bara berjast standandi. Maður þarf ekki að hafa áhyggjur af því að þeir séu að taka mann niður. Ég vil fá einn af þeim fimm bestu.“

Gunnar Nelson er búinn að vinna tvo bardaga í röð og langar mikið að fá stóran bardaga næst en Thompson virðist ekki spenntur fyrir því að berjast gegn manni þetta neðarlega á styrkleikalistanum.

„Ég heyrði af því að Gunnar Nelson vill fá bardaga við mig en hann er ekki á radarnum hjá mér því þeir sem eru á topp tíu sem Gunnar hefur barist við unnu hann. Demian Maia vann Gunnar og Rick Story líka þannig hann er bara ekki á radarnum hjá mér heldur þessir bestu,“ sagði Thompson.

„Hann stóð sig frábærlega á móti Alan Jouban og er í níunda sæti á styrkleikalistanum en hann er bara ekki á radarnum hjá mér. Hann hefur tapað fyrir tveimur mönnum sem eru á topp tíu og ég er númer eitt.“

Undradrengurinn er með bakgrunn úr karate eins og Gunnar en hann hefur heillast af gæðum íslenska bardagakappans. Hann sér þá alveg berjast seinna meir en bara ekki núna.

„Ég vil frekar berjast á móti einhverjum af þessum fimm bestu en í framtíðinni tel ég að við Gunnar munum berjast. Ég trúi því vegna þess að Gunnar er frábær bardagamaður sem hefur allt; góður í gólfinu og standandi. Við erum með svipaðan bardagastíl þar sem við komum báðir úr karate. Þetta gæti verið möguleiki í framtíðinni,“ sagði Stephen Thompson.

Viðtalið við Stephen Thompson má heyra hér að neðan en umræðan um næsta bardaga hefst á 1:19:33.

MMA

Tengdar fréttir

Undradrengurinn lyfjaður á Instagram

Maðurinn sem þjálfari Gunnars Nelson vill að hann berjist við næst, Stephen Thompson, setti inn myndband af sjálfum sér á Instagram í gær þar sem hann er ekki alveg með sjálfum sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×