Sport

Romo hættur og farinn í sjónvarpið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Romo kveður Kúrekana en ekki NFL-deildina.
Romo kveður Kúrekana en ekki NFL-deildina. vísir/getty
Einn feitasti bitinn á leikmannamarkaðnum í NFL-deildinni, leikstjórnandinn Tony Romo, kom mörgum á óvart í gær er hann ákvað að leggja skóna á hilluna.

Hann átti ekki lengur framtíð fyrir sér hjá Dallas Cowboys en slegist var um þjónustu hans. Margir héldu að hann myndi fara til Denver Broncos þar sem fyrir er lið sem myndi gefa honum möguleika á að komast í Super Bowl. Hann hafði líka áhuga á að fara til Houston Texans.

Ekkert varð úr því þar sem skórnir fóru upp í hillu og hann samdi við CBS-sjónvarpsstöðina þar sem hann mun lýsa NFL-leikjum með Jim Nantz. Það gerir hann á kostnað Phil Simms sem hefur verið aðalamaðurinn hjá CBS í 20 ár. Óvíst er hvað CBS gerir við hann. Romo mun líklega líka lýsa golfi fyrir CBS eftir einhvern tíma.





„Þetta var mjög erfið ákvörðun og ég fór nokkrum sinnum fram og til baka. Mér fannst þetta vera rétt ákvörðun á endanum. Eiginkona mín getur staðfest að við erum búin að ræða þetta oft fram á nótt,“ sagði Romo.

Romo er að verða 37 ára gamall og hefur verið óheppinn með meiðsli síðustu tvö ár. Í upphafi þessa tímabils fékk nýliðinn Dak Prescott tækifæri er hann meiddist og eignaði sér leikstjórnandastöðuna hjá Kúrekunum.

Hann var einstaklega hæfileikaríkur leikstjórnandi og vann marga flotta sigra með Dallas. Aftur á móti er kom út í úrslitakeppnina fór allt út um þúfur hjá honum.

Romo fór fjórum sinnum í úrslitakeppnina og vann aðeins tvo leiki og það í fyrstu umferð. Hann á mörg persónuleg met en verður líklega minnst sem hæfileikaríka leikstjórnandans sem klúðraði öllu í úrslitakeppninni. Hér að neðan má sjá hans glæsilegustu endurkomusigra.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×