Glamour

Pepsi auglýsing Kendall Jenner vekur hörð viðbrögð

Ritstjórn skrifar
Kendall Jenner er nýtt andlit Pepsi.
Kendall Jenner er nýtt andlit Pepsi. Mynd/Skjáskot
Í seinustu viku var tilkynnt að Kendall Jenner yrði önnur fyrirsæta í sögu Pepsi til þess að leika í auglýsingu fyrir fyrirtækið. Cindy Crawford lék í eftirminnilegri auglýsingu á tíunda áratuginum.

Auglýsinguna með Crawford má sjá hér að neðan.

Þegar auglýsingin var frumsýnd í gær skildi hún eftir spurningamerki hjá mörgum áhorfendum. Í auglýsingunni má sjá sviðsett mótmæli þar sem Jenner er að sitja fyrir í grendinni. Í miðri myndatöku nær hún augnsambandi við einn mótmælandann, tekur af sér hárkolluna og dökka varalitinn og slæst í hópinn.

Í lokin réttir hún svo einum lögreglumanninum Pepsi dós og allir mótmælendurnir fagna á hástöfum. Á meðan allt þetta er í gangi er kona í hijab að mynda gönguna. 

Auglýsinguna má sjá hér að neðan.

Það er augljóst að Pepsi hefur ætlað að endurskapa stemmninguna sem hefur verið í gangi í heiminum með því að fá fólk frá öllum upprunum til þess að berjast fyrir friði.

Vandamál heimsins eru að margra mati einfölduð allt of mikið. Einnig finnst mörgum sérkennilegt að gefa til kynna að hægt sé að leysa þessi erfiðu vandamál með Pepsi drykk. 

Að neðan má sjá brot af viðbrögðunum á Twitter.

Meðal eldri Pepsi auglýsinga er þessi með Britney Spears.






×