Sport

Fimmtudagsboltinn verður ekki áfram á Twitter

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Frá fimmtudagsleik Atlanta og Tampa Bay á síðustu leiktíð.
Frá fimmtudagsleik Atlanta og Tampa Bay á síðustu leiktíð. vísir/getty
Notendur Twitter gátu horft á fimmtudagsleikina í NFL-deildinni frítt síðasta vetur en nú verða leikirnir í boði á amazon.com.

Twitter greiddi NFL-deildinni 10 milljónir dollara til þess að sýna 10 leiki á síðustu leiktíð.

Amazon greiðir NFL-deildinni aftur á móti 50 milljónir dollara til þess að sýna leikina næsta vetur.

Þetta verður í fyrsta sinn sem Amazon sýnir beint frá íþróttaviðburðum.

Facebook og Youtube höfðu líka áhuga á þessum samningi en Amazon bauð best.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×