Lífið

CNN birtir einstakt timelaps myndband af norðurljósum við Kerið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Svakalegt að sjá.
Svakalegt að sjá.
Eins og allir vita er Ísland að verða einhver allra heitasti ferðamannastaður heims. Í kjölfarið birtast oft á tíðum mögnuð myndband af þeim náttúruperlum sem landið hefur upp á að bjóða.

Eitt af því sem ferðamann vilja einna helst sjá eru norðurljósin og eru þau sérstaklega vinsælt myndefni. Fyrir um einum mánuði síðan birti fréttastöðin CNN magnað myndband á Facebook-síðu sinni en þar má sjá einskonar timelaps-myndband af norðurljósunum við Kerið.

Þá er búið að hraða myndbandinu töluvert og því sér maður hvernig norðurljósin dönsuðu uppi á himnum þetta kvöld í mars. Hér að neðan má sjá útkomuna en þegar þessi frétt er skrifuð hefur verið horft á myndbandið um 2 milljónum sinnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×