Bíó og sjónvarp

Stony landaði hlutverki í mynd með Terrence Howard, Cara Delevinge og Jaden Smith

Stefán Árni Pálsson skrifar
Stony er heldur betur að slá í gegn.
Stony er heldur betur að slá í gegn.
Þorsteinn Baldvinsson, betur þekktur sem Stony, hefur landað hlutverki í kvikmyndinni Life in a Year. Þetta kemur fram í frétt á vefsíðunni Miðjan.

Með aðalhlutverk í kvikmyndinni fara þau Terrence Howard, ofurmódelið Cara Delevinge og Jaden Smith, sonur Jada Pinkett Smith og Will Smith.

Leikstjóri myndarinnar er Mitja Okorn en hún verður frumsýnd árið 2018. Um er að ræða rómantíska kvikmynd um 17 ára dreng sem fær þær fréttir að kærastan hans er að deyja. Hann setur sér það markmið að gefa henni heila ævi á aðeins einu ári, og fara þau saman í ferðalag og reyna upplifa eins mikið og þau geta.

Jaden Smith leikur 17 ára drenginn en Stony fer með hlutverk besta vinar hans. Cara Delevinge  fer með hlutverk kærustunnar sem ber nafnið Isabell og fær hún þær fréttir að hún á aðeins eitt ár eftir ólifað.

Sjá einnig: Stony í nýjum þætti á Nickelodeon

Á dögunum greindi Vísir frá því að Stony fari með eitt aðalhlutverkanna í þáttunum Hunter Street sem frumsýndir voru á bandarísku barnastöðinni Nickelodeon á dögunum og það er því nóg að gera hjá þessum norðlenska þúsundþjalasmið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×