Körfubolti

Kanínurnar hans Arnars lentar undir

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Auk þess að þjálfa Svendborg Rabbits er Arnar Guðjónsson aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins.
Auk þess að þjálfa Svendborg Rabbits er Arnar Guðjónsson aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins. vísir/andri marinó
Svendborg Rabbits tapaði fyrsta leiknum fyrir Bakken Bears, 95-79, í undanúrslitum um danska meistaratitilinn í körfubolta í kvöld.

Axel Kárason var í byrjunarliði Svendborg í leiknum í kvöld. Skagfirðingurinn lék í tæpar 20 mínútur, skoraði þrjú stig, tók tvö fráköst og stal boltanum í tvígang.

Stefan Bonneau, kom til Svendborg frá Njarðvík á síðasta ári, skoraði níu stig, tók þrjú fráköst, gaf tvær stoðsendingar og stal tveimur boltum.

Arnar Guðjónsson er þjálfari Svendborg sem getur jafnað metin með sigri í öðrum leik einvígisins á mánudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×