Viðskipti innlent

Keflavík keppi við Helsinki sem tengistöð heimsálfa

Kristján Már Unnarsson skrifar
Skúli Mogensen, eigandi WOW-air, segir eitt stærsta tækifæri Íslendinga felast í því að efla Keflavíkurflugvöll sem alþjóðlega tengimiðstöð. Áætlanir WOW um stækkun flugflotans og tvöföldun farþegafjölda knýja á um hraða stækkun Leifsstöðvar. Þetta kom fram í frétt Stöðvar, sem sjá má hér að ofan.

WOW-flugfélagið hyggst stækka flugflota sinn úr 17 þotum upp í 24 á næsta ári en stærsta viðbótin felst í fjórum nýjum langdrægum breiðþotum. Skúli Mogensen hyggst bæta við nýjum heimsálfum í leiðakerfið með Keflavíkurflugvöll sem miðstöð og segist ætla að tvöfalda farþegafjölda WOW úr þremur milljónum upp í sex milljónir á næstu tveimur árum.

„Megnið af þessari aukningu verða svokallaðir via-farþegar, það er að segja, þá erum við að nota Ísland sem stoppistöð,“ segir forstjóri og eigandi WOW-air. 

„Ég held einmitt að eitt stærsta tækifæri sem við höfum núna framundan, - ekki bara WOW, heldur í rauninni við sem þjóð, - er að búa hér til alþjóðlegan flugvöll sem er fókuseraður á að efla þessa tengimiðstöð.

Lega landsins er þannig að við getum stækkað töluvert, ef við horfum til dæmis á hvernig Helsinki hefur byggt upp sinn flugvöll sem tengistöð Asíu og Evrópu. Besta dæmið er Dubai, sem er búið að fara úr engu í tæplega hundrað milljón farþega á síðastliðnum tuttugu árum, fyrst og fremst til að tengja saman heimsálfur.“

Keflavíkurflugvöllur í framtíðinni, samkvæmt þróunaráætlun til ársins 2040.
Það var á árunum fyrir 1990 sem Flugleiðir hófu kerfisbundið að breyta leiðakerfi sínu með það í huga að nota Leifsstöð sem skiptistöð, sem önnur flugfélög hafa síðan nýtt sér. Hjá Flugleiðum byrjaði þetta á sex borgum í Evrópu og þremur borgum í Ameríku og allar flugvélarnar mættust svo á sama tíma í Keflavík. 

Þrjátíu árum síðar hefur borgafjöldinn og farþegafjöldinn næstum tífaldast. Í sumar verður flogið frá um sextíu stöðum í Evrópu og yfir tuttugu stöðum í Ameríku. Og nú eru horfur á að það verði ekki bara flogið í austur og vestur heldur einnig í norður en stórborgir Asíu, eins og Tókýó og Sjanghæ, eru líklegastar til að verða með þeim fyrstu þegar skiptistöðin Keflavík fer að þjóna fleiri heimsálfum. 

-Getur Keflavíkurflugvöllur tekið við þessu? 

„Ekki í núverandi mynd, engan veginn,“ svarar Skúli. 

„Ísland er að verða uppselt. Bæði þá, eins og staðan er núna, komufarþegar en líka, ef þessi  sýn á að verða að veruleika, þá þarf að taka til hendinni og stækka flugvöllinn umtalsvert.“


Tengdar fréttir

Sóknarfæri fyrir Ísland í Asíu

Uppbygging tengslaneta við Asíulönd er stórt hagsmunamál í útflutningi. Hágæðamörkuðum í Evrópu og vestan hafs fækkar en fjölgar hratt í Asíu. Kallað eftir samstarfi stjórnvalda, atvinnulífs og menntastofnana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×