Formúla 1

Verstappen var fljótastur á fyrri æfingu í Kína | Seinni æfingu aflýst

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Max Verstappen var bestur í bleytunni í dag.
Max Verstappen var bestur í bleytunni í dag. Vísir/Getty
Fyrri æfingin var stöðvuð tvisvar í langan tíma en Max Verstappen tókst að fara hraðast á Red Bull bílnum á blautri brautinni. Seinni æfingunni var aflýst.

Fyrri æfingin

Felipe Massa á Williams varð annar fljótastur, rúmlega einni og hálfri sekúndu á eftir Verstappen. Æfingin var afar óvenjuleg, Kevin Magnussen á Renault fór lengst allra eða átta hringi.

Æfingin var stöðvuð tvisvar vegna þess að veðurskilyrðin voru þannig að sjúkraþyrlan hefði ekki getað flogið ef hún hefði þurft þess. Slíkar aðstæður gera það næstum alltaf að verkum að umferð á brautinni er stöðvuð í Formúlu 1. Eina undantekningin er ef hægt er að aka á næsta sjúkrahús á innan við 20 mínútum, sem er ekki tilfellið frá brautinni í Sjanghæ.

Lance Stroll sýndi að hann kann að aka í rigningunni í morgun. Hins vegar þurftu ökumenn að sætta sig við að bíða lengi í bílunum.Vísir/Getty
Seinni æfingin

Æfingunni var aflýst vegna þess að sjúkraþyrlan gat ekki flogið. Skyggni var of lítið. Bílarnir hefðu getað ekið um brautina.

Síðast var æfingu í Formúlu 1 aflýst í Austin, Texas 2015 vegna þess að rigningin var of mikil til að senda bílana út á brautina.

Bein útsending frá tímatökunni fyrir keppnina í Kína hefst klukkan 6:50 á laugardag á Stöð 2 Sport. Bein útsending frá keppninni hefst svo klukkan 5:30 á sunnudagsmorgun.

Hér að neðan má sjá gagnvirkt brautarkort með öllum helstu úrslitum helgarinnar.


Tengdar fréttir

Alonso: Aflskorturinn bara eitt af vandamálum Honda

Fernando Alonso segir að hann hafi þurft að setja met í sparakstri í Ástralíu til að sjá fram á að bíllinn kæmist í endamark. Aflskortur er ekki eina vandamál Honda vélarinnar.

Wehrlein ekki með í Kína

Pascal Wehrlein, ökumaður Sauber liðsins í Formúlu 1, verður ekki með í kínverska kappakstrinum um komandi helgi. Antonio Giovinazzi fær því annað tækifæri eftir frábæra fumraun í Ástralíu.

FIA fundar um framtíð véla í Formúlu 1

FIA, alþjóða akstursíþróttasambandið boðar til fundar með núverandi og mögulegum framtíðar vélaframleiðendum í Formúlu 1. Efni fundarins eru vélar framtíðarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×