Sport

„Þetta var sætt, þetta var gaman“

Telma Tómasson skrifar
Stjörnur lokakvöldsins í Meistaradeild Cintamani í hestaíþróttum voru án nokkurs vafa Bergur Jónsson og magnaða hryssan hans, Katla frá Ketilsstöðum. Bergur átti mikilli velgengni að fagna í mótaröðinni í vetur og fór heim í gærkvöldi með fangið fullt af verðlaunagripum. Keppt var í tveimur greinum á lokakvöldinu, tölti T1 og flugskeiði.

Hápunktur Meistaradeildarinnar er jafnan keppni í tölti, en þar fór Bergur með sigur af hólmi. Yfirburðir hans og Kötlu voru talsverðir eftir forkeppnina, en í A-úrslitunum sóttu fast að honum þeir Jakob Svavar Sigurðsson, á Glóríu frá Skúfslæk, og Guðmundur F. Björgvinsson á Straumi frá Feti. Leikar fóru þó þannig að lokum að yfirferðartöltið skilaði Bergi himinháum einkunum og þar með skaut hann þeim Jakobi Svavari og Guðmundi ref fyrir rass, kom sér vel fyrir á toppnum og hlaut gullið, með einkunnina 8,83. ,,Þetta var sætt, þetta var gaman,“ sagði Bergur þegar sigurinn var í höfn.

En kvöldið var rétt að byrja hjá Bergi. Hann var í toppbaráttunni um efsta sætið í einstaklingskeppninni í Meistaradeildinni og því var hvert stig honum mikilvægt. Hlaut hann 12 stig fyrir sigur í tölti og einnig 5 fyrir árangur í flugskeiði, en nokkrir knapar voru um hituna og hélst spennan allt til loka kvöldsins. Þegar allt var samankomið og útreiknað kom í ljós að Bergur og Árni Björn Pálsson voru jafnir að stigum, með 45 stig hvor. Hafði Bergur hins vegar sigrað oftar í einstökum greinum og samkvæmt reglum var hann því réttmætur sigurvegari Meistaradeildarinnar 2017. „Þetta var gaman. Stóð tæpt en hafðist,“ sagði meistarinn þegar niðurstaðan lá fyrir.

En þá er ekki allt upptalið enn því lið Bergs, Gangmyllan, var kjörið skemmtilegasta liðið, var í þriðja sæti í liðakeppninni, auk þess sem hann og liðsmaður hans, Elin Holst, voru kjörin fagmannlegustu knaparnir. Magnaður lokasprettur hjá Bergi.

Sýnt var frá Meistaradeild Cintamani í beinni útsendingu á Stöð 2 sport og má sjá valin augnablik frá lokakvöldinu á meðfylgjandi myndskeiði.

Niðurstöður A-úrslita í tölti voru eftirfarandi:

1 Bergur Jónsson Katla frá Ketilsstöðum                               8.83

2 Jakob Svavar Sigurðsson Gloría frá Skúfslæk                     8.78

3 Guðmundur Friðrik Björgvinsson Straumur frá Feti           8.61

4 Ásmundur Ernir Snorrason Spölur frá Njarðvík                  8.39

5 Árni Björn Pálsson Skíma frá Kvistum                                8.28

6 Viðar Ingólfsson Pixi frá Mið-Fossum                                7.89

Einstaklingskeppni Meistaradeildar í hestaíþróttum 2017

Bergur Jónsson            45 stig

Árni Björn Pálsson      45 stig

Jakob S. Sigurðsson    43.5 stig

Liðakeppni Meistaradeildar í hestaíþróttum 2017

Top Reiter       439.5   stig

Hestvit / Árbakki / Svarthöfði   367.5 stig                

Gangmyllan     351 stig




Fleiri fréttir

Sjá meira


×