Formúla 1

Wolff: Ferrari bíllinn var fljótari

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Toto Wolff ræðir við Maurizio Arrivabene, liðsstjóra Ferrari.
Toto Wolff ræðir við Maurizio Arrivabene, liðsstjóra Ferrari. Vísir/Getty
Liðsstjóri Mercedes, Toto Wolff segir að Ferrari bíllinn hafi verið fljótari en Mercedes bíllinn í Ástralíu í fyrstu keppni tímabilsins.

Lewis Hamilton var á ráspól á Mercedes bílnum en tapaði fyrsta sætinu til Sebastian Vettel á Ferrari í keppninni. Hamilton endaði 10 sekúndum á eftir Vettel.

„Sumar keppnir vinnur maður en sumum tapar maður, þegar að því kemur að annað lið stendur sig betur en þitt, þá þarf maður að taka því af auðmýkt og viðurkenna árangur þeirra,“ sagði Wolff.

„Sebastian og Ferrari áttu skilið að vinna. Það var ljóst snemma í keppninni að Sebastian væri fljótur vegna þess að Lewis gat ekki slitið sig frá honum,“ bætti Wolff við.

„Við töldum okkur vera að taka rétta ákvörðun með þjónustuhlé Lewis. Hann var sammála því. Við tókum áhættusama ákvörðun um að taka þjónustuhlé,“ hélt Wolff áfram.

„Við vorum á milli steins og sleggju og við tókum áhættuna. Ferrari spilaði vel úr stöðunni og þeir voru með fljótari bíl. Við náðum auknum hraða á mjúku dekkjunum. Nú þurfum við að læra af þessari keppni og skilja afhverju við gerðum ekki okkar besta, við munum halda áfram að vinna í hverju atriði í bílnum,“ sagði Wolff að lokum.


Tengdar fréttir

Sebastian Vettel vann í Ástralíu

Sebastian Vettel vann fyrstu keppni tímabilsins á Ferrari bílnum. Lewis Hamilton varð annar á Mervedes og Valtteri Bottas varð þriðji á Mercedes.

Vettel: Við erum komin til að berjast

Sebastian Vettel vann fyrstu keppni tímabilsins í Ástralíu. Hann er því sá fyrsti sem leiðir heimsmeistarakeppni á Hybrid skeiði Formúlu 1 sem er ekki ökumaður Mercedes.

Bílskúrinn: Ágætis byrjun í Ástralíu

Formúlu 1 tímabilið hófst á nýjan leik í Ástralíu um helgina. Sebastian Vettel á Ferrari kom fyrstur í mark í spennandi keppni sem lofar góðu fyrir tímabilið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×