Innlent

Ólafur Helgi fyrstur til að gefa blóð í 200. sinn

Atli Ísleifsson skrifar
Ólafur Helgi í blóðgjöf árið 2006.
Ólafur Helgi í blóðgjöf árið 2006. Vísir/Stefán
Ólafur Helgi Kjartansson mun í dag mæta í Blóðbankann þar sem hann mun gefa blóð í 200. sinn. Þetta er í fyrsta sinn sem blóðgjafi nær þessum áfanga.

Ólafur Helgi starfar sem lögreglustjóri á Suðurnesjum og hefur gefið um níutíu lítra af blóði. Í tilkynningu frá Blóðbankanum segir að gera megi ráð fyrir að hann hafi með gjöfum sínum hjálpað milli tvö og þrjú hundruð manns. Þar sem hver blóðgjöf tekur um hálftíma megi gera ráð fyrir að hann hafi verið á annað hundrað klukkustundir í Blóðbankanum á ævi sinni.

Ólafur Helgi mun mæta í Blóðbankann í blóðgjöf klukkan 11 í dag.

„Ólafur Helgi gaf blóð í fyrsta sinn á síðasta ári sínu í Menntaskólanum í Reykjavík þann 19. mars 1972, þá 18 ára gamall. Síðan hefur hann gefið blóð reglulega og oft haft mikið fyrir því að komast í blóðgjöf. Ólafur var um tíma blóðflögugjafi og kom þá í blóðskiljuvél reglulega.  Eftir það hefur ferillinn verið nokkuð samfelldur og það þrátt fyrir 18 ára búsetu á Ísafirði, en allar Reykjavíkurferðir voru skipulagðar þannig að nauðsynleg erindi bæði vegna starfa og setu í bæjarstjórn og bæjarráði fellu saman við blóðgjöf nokkurn veginn á þriggja mánaða fresti.

Árið 2002 var Ólafur Helgi kosinn í stjórn Blóðgjafafélags Íslands og tveimur árum síðar sem formaður og gegndi því hlutverki í 10 ár, til ársins 2014.  Auk þess að vera einn af okkar dyggustu blóðgjöfum hafa fáir komist með tærnar þar sem Ólafur hefur hælana varðandi öflun blóðgjafa. Meðan Ólafur bjó á Selfossi virkjaði hann fjöldann allann af fólki til að verða blóðgjafar og voru oft slegin met við blóðsöfnun þar. Eftir að Ólafur svo fluttist á Suðurnesin hafa þau styrkst og eflst sem blóðsöfnunarstaður og er nú svo komið að fjöldi þeirra sem koma í bílinn í Reykjanesbæ er oft fleiri en á Selfossi,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×