Körfubolti

Karl Malone allt annað en hrifin af „hvíldardögum“ NBA-leikmannanna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Karl Malone er annar stigahæsti leikmaður NBA-deildarinnar frá upphafi.
Karl Malone er annar stigahæsti leikmaður NBA-deildarinnar frá upphafi. Vísir/Getty
Karl Malone spilaði 19 tímabil í NBA-deildinni og er einn af mestu járnmönnum í sögu deildarinnar. Hann gefur ekki mikið fyrir það sem NBA-liðin eru mörg hver byrjuð að stunda til að halda leikmönnum sínum ferskum.

Malone spilaði 81 leik eða fleiri á fjórtán af sínum nítján tímabilum og hann var ekki að taka sér „frí“ í vinnunni eins og hann orðar það.

Lið í NBA-deildinni eru mörg farin að hvíla stjörnuleikmenn sína í ákveðnum leikjum. San Antonio Spurs hefur stundað þetta undanfarin ár en nú eru fleiri lið farin að gera þetta líka.

Golden State Warriors mætti með hálfgert varalið í leik á móti San Antonio Spurs á dögunum og um helgina hvíldi Cleveland Cavaliers sína þrjá bestu menn í leik á móti Los Angeles Clippers. LeBron James, Kyrie Irving og Kevin Love fengu þá allir frí.

„Ef þú hefur ekki að minnsta kosti tíu ára reynslu þá drullastu til að spila. Þetta er ekki vinna því þetta er kallað að leika (playing),“ sagði Karl Malone í spjalli við Sage Steele hjá ESPN.

„Ennfremur, segðu þjónustufólkinu á lélegu launum, lögreglunni og fyrstu viðbragðsaðilum að taka sér frí. Fjandinn hafi það, þau geta það ekki,“ sagði Malone og hefur vissulega margt til síns máls.

Það fylgir líka sögunni að það er mikið álag á skrokkum NBA-leikmannanna sem þurfa að spila 82 leiki áður en kemur að úrslitakeppninni auk þessa að ferðast langar vegalengdir á milli borga í Bandaríkjunum.

Það má samt búast við að þetta máli fá meiri umfjöllun og athygli haldi liðin áfram að gefa bestu mönnum sínum frí í leikjum. Það er ekki gott fyrir almenningsálit NBA-deildarinnar ef áhorfendur sem borga fyrir að sjá Steph Curry og LeBron James spila en sjá ekki meira af þeim en þá hlæjandi í sparifötunum á bekknum.  

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×