Viðskipti innlent

Lilja boðar til fundar vegna Arion

Sæunn Gísladóttir skrifar
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra. vísir/stefán
Fundað verður í efnahags- og viðskiptanefnd vegna kaupa kaupa bandarískra og breskra fjárfestingasjóða og fjárfestingabankans Goldman Sachs á tæplega þrjátíu prósenta hlut í Arion banka næstkomandi miðvikudag. Þetta staðfestir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, í samtali við Vísi. Fundurinn mun fara fram á miðvikudagsmorgun.

Eins og Vísir greindi frá í gær hefur Goldman Sachs, ásamt þremur alþjóðlegum fjárfestingasjóðum, keypt samanlagt tæplega 30 prósenta hlut í Arion banka af Kaupþingi eignarhaldsfélagi fyrir samtals ríflega 48,8 milljarða króna. Eftir söluna á Kaupþing, í gegnum dótturfélag sitt Kaupskil ehf., 57,9 prósenta hlut í Arion banka.

Fundað verður með fulltrúum Fjármálaeftirlitsins og Höskuldi Ólafssyni bankastjóra Arion banka. Lilja segir að óskað verði eftir upplýsingum um endanlega eigendur. Hún segir að allir nefndarmenn hafi stutt beiðnina um fundinn.

Fréttin verður uppfærð.


Tengdar fréttir

Goldman Sachs og þrír sjóðir kaupa um 30 prósent í Arion banka

Í tilkynningu sem Kaupþing sendi frá sér rétt í þessu til Kauphallarinnar kemur fram að samkomulagið geri jafnframt ráð fyrir að fjárfestahópurinn fái kauprétt að 21,9 prósenta hlut til viðbótar sem verður á hærra gengi en greitt var fyrir hlutinn í lokaða útboðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×