Körfubolti

Taldi sig geta unnið Jordan í 1 á 1 en svona væri niðurstaðan | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
LaVar Ball og Michael Jordan.
LaVar Ball og Michael Jordan. Vísir/Samsett/Getty
Charles Barkley reyndi í síðustu viku að þagga niðri í LaVar Ball montnasta körfuboltapabba Bandaríkjanna með því að gera grín af því að Ball hafi aðeins skorað tvö stig að meðaltali í leik í háskóla.

Auk þess að monta sig af sonum sínum þremur sem eru allir í hópi efnilegustu körfuboltamanna Bandaríkjanna þá hefur LaVar Ball einnig verið að gera meira úr körfuboltagetu sinni en mörgum þótti efni til.

LaVar Ball hélt því nefnilega fram að hann hefði unnið Michael Jordan í einn á einn þegar hann var upp á sitt besta. Pabbi leikmanns sem væri betri en Steph Curry þarf nú að hafa skilað einhverjum körfuboltagenum til stráksins en flestir göptu þegar þeir sáu þessa yfirlýsingu.

Sjá einnig:Pabbi Ball vill 112 milljarða skósamning fyrir synina þrjá

LaVar Ball átti afar stuttan og dapran feril í 1. deild bandaríska háskólaboltans og skoraði bara 2,2 stig í leik á eina tímabili sínum með Washington State 1987-88. Ball skoraði samtals 56 stig allt tímabilið með Washington State en sama vetur skoraði Jordan 35,0 stig að meðaltali í NBA-deildinni og mest 55 stig í einum leik sem var í úrslitakeppninni.

Ball var ekki að bera sig saman við hvern sem er heldur þann sem er að flestra mati talinn vera besti körfuboltamaður allra tíma.

Sjá einnig:Barkley skoraði á pabba Ball í einn á einn

BdotAdot5 er orðinn vel þekktur í heimi körfuboltaáhugamanna fyrir að gera grín af bestu körfuboltamönnum heimsins. Hann tók þetta tækifæri á lofti og setti á svið hvernig leikur MJ og LaVar Ball hefði litið út. Það er óhætt að segja að útkoman sé skrautleg og mjög fyndin. Hana má sjá hér fyrir neðan.

Eini sem brosir ekki af þessu myndbandi er líklega umræddur Lavar Ball. Strákarnir hans hafa örugglega gaman af þessu enda líklega orðnir löngu leiðir á yfirlýsingum pabba sína.

Fyrir áhugasama þá er tölfræði Ball í háskóla hér og tölfræði Michael Jordan í NBA hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×