Erlent

Trump segir þingsæti Repúblikana í húfi

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Trump gengur til fundar með þingmönnum Repúblikana til að ræða um Obamacare.
Trump gengur til fundar með þingmönnum Repúblikana til að ræða um Obamacare. vísir/epa
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði við Repúblikana á þingi að þeir myndu hafa verra af, tækist þeim ekki á kjörtímabilinu að koma sér saman um nýtt heilbrigðisfrumvarp sem kæmi í staðinn fyrir heilbrigðislög Baracks Obama.

„Ég held í allri einlægni að margir ykkar muni missa þingsætin árið 2018 ef ykkur tekst ekki að ljúka þessu,“ sagði hann á lokuðum fundi í gær, að sögn bandarískra fjölmiðla.

Mikill ágreiningur er meðal Repúblikana á þingi um það hvers konar löggjöf eigi að taka við af Obama­care-lögunum svonefndu.

Það var eitt helsta kosningamál Trumps að gera Obamacare-lögin að engu, en sumir flokksfélagar hans vilja ganga mjög langt í þeim efnum en aðrir mun styttra.

Allt stefnir því í að erfitt verði fyrir Repúblikana að koma sér saman um hvað taka eigi við.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×