Lífið

Stöð 2 í kvöld: Sindri og Þóra Margrét ræða um falleg heimili

Þóra Margrét Baldvinsdóttir, forsætisráðherrafrú, er einn stjórnenda þáttarins Falleg íslensk heimili sem sýndur er á Stöð 2.
Þóra Margrét Baldvinsdóttir, forsætisráðherrafrú, er einn stjórnenda þáttarins Falleg íslensk heimili sem sýndur er á Stöð 2.
Hvað gerir heimili fallegt, hvað er falleg hönnun og eru íslensk heimili öðruvísi en önnur?

Þessum og fleiri spurningum svarar Þóra Margrét Baldvinsdóttir sem er einn þriggja stjórnenda þáttarins um falleg íslensk heimili sem hóf göngu sína á Stöð 2 síðasta sunnudag. Í þáttunum skoðar Þóra falleg íslensk heimili ásamt Gullu Jónsdóttur, arkitekt og hönnuði og Helga Ómarssyni, ljósmyndara og stílista.

Rætt verður við Þóru í síðari hluta fréttatíma Stöðvar 2 í kvöld; fréttirnar hefjast klukkan 18.30 og eru í opinni dagskrá að vanda.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×