Lífið

Melissa McCarthy skildi ekki af hverju hún átti að leika Sean Spicer

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Melissa er mun líkari Sean en hún heldur.
Melissa er mun líkari Sean en hún heldur. Vísir/Skjáskot
Leikkonan Melissa McCarthy mætti á dögunum í heimsókn til sjónvarpskonunnar Ellen, ásamt eiginmanni sínum Ben Falcone.

Þar fóru þau um víðan völl en ræddu meðal annars hlutverk Melissu í sjónvarpsþáttunum Saturday Night Live, þar sem hún fer á kostum sem blaðamannafulltrúi Hvíta hússins, Sean Spicer.

Sjá einnig: Melissa McCarthy fór á kostum sem Sean Spicer í SNL

Hún sagðist upprunalega ekki hafa skilið af hverju framleiðendur þáttanna vildu að hún tæki hlutverkið að sér, en eftir að hafa verið komin í gervi, hafi hún skilið það betur.

„Það er eins og pabbi minn og Sean Spicer hafi eignast barn og það er ég,“ sagði McCarthy meðal annars í þessu stórskemmtilega viðtali. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×