Handbolti

Elías Már tekur við kvennaliði Hauka eftir tímabilið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Elías Már hefur átt farsælan feril með Haukum.
Elías Már hefur átt farsælan feril með Haukum. vísir/eyþór
Elías Már Halldórsson, fyrirliði karlaliðs Hauka, tekur við kvennaliði félagsins í sumar.

Elías Már tekur við liðinu af Óskari Ármannssyni sem lætur staðar munið eftir þetta tímabil vegna anna.

Elías Már, sem er 34 ára, hefur leikið með meistaraflokki Hauka síðustu ár. Hann hefur einnig leikið með Aftureldingu, HK, Akureyri og í Noregi og Þýskalandi.

 

Elías Már hefur átt farsælan feril sem leikmaður; unnið fimm Íslands- og deildarmeistaratitla og fjóra bikarmeistaratitla.

Elías Már hefur einnig starfað við þjálfun síðustu ár og er nú þjálfari 2. flokks karla hjá Haukum auk þess starfa á afrekslínu félagsins.

Haukar sitja í 3. sæti Olís-deildar kvenna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×