Lífið

Fyrsta myndband Völvunnar: „Ég held að hin fullkomna píka sé bara manns eigin píka“

Nína Hjördís Þorkelsdóttir skrifar
Salka Sól velti vöngum um hina fullkomnu píku í myndbandi Völvunnar.
Salka Sól velti vöngum um hina fullkomnu píku í myndbandi Völvunnar. vísir/skjáskot
Málefni píkunnar voru rædd í fyrsta myndbandi Völvunnar. Völvan er hugarfóstur þeirra Ingu Bjarkar Bjarnadóttur og Ingigerðar Bjarndísar Ágústsdóttur en markmið verkefnisins er að opna umræðuna um píkuna. 

Í myndbandinu ræddu viðmælendur um upplifun sinni af eigin píku, blæðingum, sjálfsfróun, kynlífi og kynfræðslu, svo eitthvað sé nefnt.

Sjá einnig: Vilja opna umræðuna um píkuna

Viðmælendahópur Völvunnar var fjölbreyttur en jafnframt mátti greina nokkur landsþekkt andlit í hópnum.

Salka Sól Eyfeld deildi meðal annars hugleiðingum sínum um hina fullkomnu píku.  

„Ég hef ekkert séð margar píkur. Við vitum ekkert hvernig píkur eiga að vera,“ sagði Salka Sól og bætti því við að hugmyndir okkar um hina fullkomnu píku væru vafalaust fengnar úr klámi.

„Ég held að hin fullkomna píka sé bara manns eigin píka.“

Ingigerður Bjarndís Ágústsdóttir og Inga Björk Bjarnadóttir.vísir/stefán


Sjálfsfróun bar einnig á góma en þær Jóhanna Vala Höskuldsdóttir og Sigríður Eir Zophoníasdóttir ræddu um þá skömm sem sumir tengja við sjálfsfróun kvenna. Þær grínuðust með að sjálfsfróun karla ætti kannski öllu heldur að vera skömmustuleg athöfn.

„Ætti ekki bara að vera meiri skömm í kringum það að sjálfsfróun þín endi með því að fullt af slímkenndum vökva gúlpast út úr þér?,“ velti Jóhanna Vala upp.

Margrét Erla Maack talaði jafnframt um hugmyndir manna um hina fullkomnu píku og hvaðan þær koma.

„Eins og svo rosalega margt, þá geta líkamspartar verið lýti. Mér finnst að hver og einn ætti að ákveða það fyrir sjálfan sig en hafa það í huga hvaðan hugmynd okkar um hinn fullkomna líkama kemur.“

Myndbandið má sjá í heild sinni hér fyrir neðan.  


Tengdar fréttir

Vilja opna umræðuna um píkuna

Þær Inga Björk Bjarnadóttir og Ingigerður Bjarndís Ágústsdóttir frumsýna á Loft Hostel í kvöld myndband sem þær gera undir merkjum Völvunnar, verkefnis sem byrjaði fyrir um ári síðan en fór almennilega af stað í desember síðastliðnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×