Körfubolti

Þreföld tvenna Harden afgreiddi meistarana

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Harden var rosalegur í nótt og ekki skrítið að margir vilji velja hann verðmætasta leikmann deildarinnar.
Harden var rosalegur í nótt og ekki skrítið að margir vilji velja hann verðmætasta leikmann deildarinnar. vísir/getty
James Harden átti enn einn stórleikinn fyrir Houston Rockets í nótt er liðið átti frábæra endurkomu gegn Cleveland og vann sætan sigur.

Rockets var mest fjórtán stigum undir en þökk sé frábærum leik Harden náði liðið að vinna fimm stiga sigur.

Hann skoraði 38 stig, gaf 11 stoðsendingar og tók 10 fráköst. LeBron James var atkvæðamestur í liði Cleveland með 30 stig.

Þetta var 16. þrefalda tvennan hjá Harden í vetur og 31. leikurinn þar sem hann skorar að minnsta kosti 30 stig. Þetta var fjórða tap Cleveland í síðustu fimm leikjum liðsins.

Úrslit:

Boston-Chicago  100-80

Brooklyn-NY Knicks  120-112

Indiana-Miami  102-98

Phoenix-Portland  101-110

Houston-Cleveland  117-112

LA Lakers-Philadelphia  116-118

Staðan í NBA-deildinni.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×