Viðskipti innlent

Sævar Freyr ráðinn bæjarstjóri á Akranesi

Birgir Olgeirsson skrifar
Sævar tekur við starfinu af Regínu Ásvaldsdóttur sem nýlega var ráðin sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.
Sævar tekur við starfinu af Regínu Ásvaldsdóttur sem nýlega var ráðin sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Vísir/Vilhelm
Sævar Freyr Þráinsson hefur verið ráðinn bæjarstjóri á Akranesi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað en Sævar lét af störfum sem forstjóri 365 miðla í morgun og mun hefja störf sem bæjarstjóri í dag. Bæjarstjórn Akraness tók ákvörðun um að ganga til samninga við Sævar á lokuðum fundi 28. febrúar síðastliðinn.

Tilkynnt var í Kauphöllinni í morgun að Vodafone hefði gengið frá samkomulagi um kaup á rekstri ljósvaka- og fjarskipta­ rekstri 365 ásamt starfsemi visir.is.

Sævar er viðskiptafræðingur að mennt og hefur langa og farsæla reynslu af stjórnun. Hann starfaði sem forstöðumaður og framkvæmdastjóri hjá Símanum um margra ára skeið þar sem hann bar meðal annars ábyrgð á þróun, sölu, markaðsmálum, vörustjórnun, viðskiptastýringu og gagnalausnum.

Hann varð forstjóri Símans árið 2007 og gegndi því starfi þar til hann tók við forstjórastöðu hjá 365 miðlum. Sævar á sæti í framkvæmdastjórn viðskiptaráðs og hefur gengt stjórnarformennsku meðal annars hjá fyrirtækjunum Sensa og On-Waves og átt sæti í stjórnum fjölmargra fyrirtækja sem tengjast fjarskiptamálum og hugbúnaði.

Sævar Freyr hefur tekið með virkum hætti þátt í samfélags- og menningarmálum á Akranesi en hann er varaformaður knattspyrnufélags Íþróttabandalags Akraness, varaformaður Vesturlandsvaktarinnar sem eru hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunar Vesturlands og stjórnarmaður í góðgerðarfélaginu, Club 71. Þá hefur hann átt sæti í atvinnumálanefnd kaupstaðarins og í stjórn Lífeyrissjóðs Akraneskaupstaðar.

Sævar Freyr er giftur Hafdísi Hannesdóttur geislafræðingi og eiga þau þrjú börn á aldrinum 13 til 21 árs. Sævar hefur störf sem bæjarstjóri á Akranesi í dag.

Sævar Freyr mætti í Bítið í morgun og ræddi breytingar morgunsins.


Tengdar fréttir

Kaup Vodafone á 365 miðlum undirrituð

Vodafone kaupir allar eignir og rekstur 365 miðla, að undanskildum eignum er varða útgáfu Fréttablaðsins og tímaritsins Glamour. Vísir fylgir með í kaupunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×