Íslenski boltinn

Geir: Hefði aldrei boðið mig fram til FIFA hefði ég vitað að ég myndi hætta hjá KSÍ

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Geir Þorsteinsson tók við formennsku í KSÍ árið 2007, en lét af störfum í dag.
Geir Þorsteinsson tók við formennsku í KSÍ árið 2007, en lét af störfum í dag. Vísir/anton
Eins og greint var frá um helgina hefur Geir Þorsteinsson ákveðið að draga framboð sitt til stjórnar Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, til baka.

Geir átti víst sæti í stjórn FIFA þar sem aðeins fjórir fulltrúar frá Knattspyrnusambandi Evrópu, UEFA, voru eftir í framboði um fjögur laus sæti í stjórn FIFA. Engu að síður ákvað hann að draga framboð sitt til baka.

„Þetta er eins og það er. Sumir félaga minna hefðu viljað að ég myndi halda áfram. Það voru skiptar skoðanir um þetta en menn virtu þó þessa ákvörðun,“ segir Geir við Vísi í dag.

Betri stjórnunarhættir

Ástæðan fyrir því að hann dró sig til baka er að fyrir þingi UEFA í Helsinki í apríl liggja fyrir tillögur um breytingar sem miða að betri stjórnunarháttum innan UEFA. Meðal þess er að fulltrúar í stjórn UEFA séu starfandi í forystu sinna knattspyrnusambanda.

Þar sem Geir ákvað að gefa ekki kost á sér áfram sem formaður KSÍ taldi hann rétt að draga framboð sitt til stjórnar FIFA til baka.

„Ég veit hvernig landið liggur og þó svo að þessar tillögur hafi ekki enn verið formlega samþykktar og eiga við um stjórn UEFA taldi ég hið eina rétta í stöðunni að komast að þessari niðurstöðu,“ segir Geir.

Geir á ársþingi KSÍ í síðasta mánuði.mynd/ksí
Stjórnarskórnir á hilluna

Framboðsfrestur til stjórnar FIFA rann út 5. desember. Geir bauð sig fram með stuðningi hinna Norðurlandanna og gerði þá ekki ráð fyrir öðru en að gefa áfram kost á sér í formannsembætti KSÍ.

„Ég hefði aldrei gefið kost á mér í stjórn FIFA hefði ég vitað þá að ég myndi hætta hjá KSÍ,“ sagði Geir. „Það hefði mér ekki fundist rétt. Margir töldu ef til vill að ég væri að nota framboðið til FIFA til að halda mér inni [í hreyfingunni] en það var á hinn veginn. Með því að hætta hjá KSÍ fylgdi hin ákvörðunin með.“

Þar með liggur beinast við að spyrja Geir hvort að það sé þar með útilokað að hann muni síðar taka að sér sæti í stjórn annars stóru knattspyrnusambandanna?

„Já, nú eru stjórnarskórnir komnir á hilluna,“ sagði hann í léttum dúr.

Ýmis tækifæri

Geir hefur ekki gefið út hvað hann muni taka sér fyrir hendur næst en hann segist hafa verið að skoða möguleika á öðrum störfum innan knattspyrnuhreyfingarinnar.

„Mér hefur verið efst í huga að starfa áfram innan fótboltans enda með óvenjulega yfirgripsmikla þekkingu á málefnum knattspyrnunnar, bæði innanlands og á alþjóðlegum vettvangi,“ segir Geir.

„En það er ekkert ákveðið og ekkert í hendi. Margir héldu ef til vill að ég væri með eitthvað annað í höndunum fyrst ég hætti hjá KSÍ. En það er ekki svo, þó svo að ýmis tækifæri hafi komið fram eftir að ég lauk störfum fyrir knattspyrnusambandið.“

Hann segir að ekkert annað hafi búið að baki ákvörðun hans um að hætta hjá KSÍ en að hann taldi það tímabært.

„Því miður get ég ekki tekið undir kenningar um að ástæðurnar hafi verið af öðrum toga. Eftir 25 ár fannst mér tímabært að hætta. Eftir að maður gaf sér smá tíma til að slaka á og hugsa málið þá varð þetta niðurstaðan.“


Tengdar fréttir

Geir heiðraður af ÍSÍ og UEFA

Geir Þorsteinsson, fráfarandi formaður KSÍ, var í dag sæmdur gullmerki ÍSÍ á 71. ársþingi KSÍ sem nú stendur yfir í Vestmannaeyjum.

Út hjá KSÍ, inn hjá FIFA

Geir Þorsteinsson, fráfarandi formaður KSÍ, hefur verið skipaður í nefnd hjá FIFA, Alþjóðaknattspyrnusambandinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×