Glamour

Dóttir Michael Jackson er forsíðufyrirsæta Harper's Bazaar

Ritstjórn skrifar
Flott forsíðufyrirsæta.
Flott forsíðufyrirsæta. Myndir/Harper's Bazaar
Engin önnur en dóttir popp kóngsins Michael Jackson prýðir forsíðu Harper's Bazaar þennan mánuðinn. Paris Jackson hefur verið að geta sér gott nafn í tískuheiminum síðustu misseri. Hún hefur verið að mæta á allar helstu sýningarnar  í París sem og setið fyrir í tískutímaritum. 

Í tölublaðinu er hún í opinskáu viðtali þar sem hún ræðir þessa frægð sem hún öðlaðist nú á stuttum tíma, föður sinn og hvernig það er að hafa alist upp í kringum hann. Hún segir að þegar hún var ung hafi hún nánast einungis umgengst Michael og bræður sína tvo. Líf hennar í dag sé því töluvert öðruvísi heldur en hvernig það var þegar hún ólst upp. 

Viðtalið má lesa í heild sinni hér. 






×