Fótbolti

Tímamótatáningur fyrir franska landsliðið í fótbolta

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kylian Mbappe hefur verið líkt við Thierry Henry.
Kylian Mbappe hefur verið líkt við Thierry Henry. Vísir/Getty
Kylian Mbappe, táningurinn í framlínu Mónakó-liðsins, er búinn að vinna sér sæti í franska landsliðinu og það þýðir um leið skemmtileg tímamót fyrir franskan fótbolta.

Kylian Mbappe er í 24 manna leikmannahópi Frakka fyrir leik á móti Lúxemborg í undankeppni HM og vináttuleik við Spán nokkrum dögum síðar.

Kylian Mbappe hefur skorað 10 mörk í frönsku deildinni og skoraði eitt marka liðsins í 3-1 sigri á Manchester City í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gærkvöldi. Mbappe er fæddur 20. desember 1998 og verður því ekki nítján ára fyrr í lok ársins.

Didier Deschamps er þjálfari franska landsliðsins í dag en hann var fyrirliði liðsins þegar Frakkar urðu heimsmeistarar í fyrsta og eina skiptið sumarið 1998.

Tímamótin eru tengd þessum titli fyrir að verða nítján árum síðan. Kylian Mbappe er nefnilega fyrsti landsliðsmaður Frakka sem fæddist eftir að Frakkar urðu heimsmeistarar á heimavelli árið 1998.

Kylian Mbappe hefur þegar verið líkt við Thierry Henry og þar er ekki leiðum að líkjast.

Mónakó-liðið hefur slegið í gegn í vetur með blússandi sóknarleik þar sem Kylian Mbappe hefur verið í sviðsljósinu. Hann er þó ekki sá eini í liðinu sem eru í hópnum því þar eru einnig liðsfélagar hans Thomas Lemar, Benjamin Mendy og Djibril Sidibe.

Meðal þeirra sem eru út í kuldanum hjá eru þeir Karim Benzema hjá Real Madrid og Alexandre Lacazette hjá Lyon.

Landsliðshópur Frakka:

Markverðir: Alphonse Areola (Paris Saint-Germain), Benoit Costil (Rennes) og Hugo Lloris (Tottenham Hotspur).

Varnarmenn: Presnel Kimpembe (Paris Saint-Germain), Laurent Koscielny (Arsenal), Layvin Kurzawa (Paris Saint-Germain), Benjamin Mendy (Mónakó), Adil Rami (Sevilla), Bacary Sagna (Manchester City), Djibril Sidibe (Mónakó) og Samuel Umtiti (Barcelona).

Miðjumenn: N'Golo Kante (Chelsea), Thomas Lemar (Mónakó), Blaise Matuidi (Paris Saint-Germain), Paul Pogba (Manchester United), Adrien Rabiot (Paris Saint-Germain), og Corentin Tolisso (Lyon).

Sóknarmenn: Ousmane Dembele (Borussia Dortmund), Kevin Gameiro (Sevilla FC), Olivier Giroud (Arsenal), Antoine Griezmann (Atletico Madrid), Kylian Mbappe (Mónakó), Dimitri Payet (Marseille) og Florian Thauvin (Marseille).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×