Glamour

Rán framið á heimili Kendall Jenner

Ritstjórn skrifar
Kendall á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir.
Kendall á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir. Mynd/Skjáskot
Samkvæmt heimildum sjónvarpsstöðvarinnar E! var brotið inn á heimili Kendall Jenner í nótt. Hringt var á lögregluna klukkan eitt um nótt á staðartíma. Kendall var ekki heima þegar ránið átti sér stað. 

Talið er að ræninginn hafi haft á brott með sér skartgripi sem voru 200.000 dollara virði. Atvikið hlýtur að vekja upp óhuggulegar minningar hjá Kardashian fjölskyldunni þar sem aðeins eru nokkrir mánuðir eru frá því að Kim Kardashian var rænd á hrottalegan hátt í París. 










×