Erlent

Prestur fann risademant í Sierra Leone

Atli Ísleifsson skrifar
Presturinn Emmanuel Momoh með demantinn.
Presturinn Emmanuel Momoh með demantinn.
Presturinn Emmanuel Momoh hefur fundið einn af stærstu demöntum heims í smábæ í Sierra Leone. Presturinn hefur komið demantinum, sem er 706 karata, í hendur, forseta landsins.

Momoh fann demantinn í einni af smærri námunum í bænum Koyadu í Kono-héraði, en áætlað er að demanturinn sé einn af tuttugu stærstu demöntum sem hafa fundist.

Demanturinn er 706 karata.Vísir/AFP
Nú er verið að meta verðmæti demantsins sem verður svo seldur á uppboði. Til samanburðar má nefna að á síðasta ári var 813 karata demantur seldur á um sjö milljarða króna á uppboði í London.

Forsetinn Ernest Bai Koroma hefur þakkað prestinum fyrir að hafa ekki smyglað steininum úr landi, en Momoh kveðst vilja aðstoða ríkisstjórn og þjóðinni allri með því að koma demantinum til forsetans. 

Demanturinn er nú geymdur í öryggishólfi í byggingu seðlabanka landsins.

Sierra Leone er eitt af fátækustu ríkjum heims en í landinu búa um sex milljónir manna.

Stærsti demantur sem hefur nokkurn tímann fundist svo vitað sé fannst í Suður-Afríku árið 1905. Cullinan-demanturinn var 3.106 karata og var meðal annars notaður við gerð bresku krúnudjásnanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×